Tuesday, April 23, 2013

My top mascaras

Hér eru marskarar sem ég mæli svo með og finnst þeir æðislegir.
GREAT LASH
Maybelline
Fyrst þegar ég prófaði þennnan maskara fannst mér han ekki góður alls ekki, Svo ákvað ég að gera aðra tilraun að athuga hvort að hann væri nú ekki betri en ég mundi og ég setti hann bara á neðri augnhárin. Hann var allan daginn og hann gerði mig ekki svarta undir augunum og "brotnaði" ekki af augnhárunum. Svo ég mæli með honum á neðri augnhárin.. ég er ekki eins hrifin að honum á efri líka..
Þar sem burstinn er lítill þá nær maður alveg öllum hárum. Hann næst vel af!

CLUMP DEFY
Max Factor
Þessi maskari er ánefa besti maskari sem ég hef prófað. Það stendir að hann eigi að gefa manni False Lash Effect og það er akkurat sem hann gerir. Hann lengir vel augnhárin gefur ekki einhverja mikla þykkt en samt alveg nóg. Mér finnst gott að setja yfir þennan Falsies by Maybelline. Hann helst alveg nokkuð vel á. "brotnar" ekki. Auðvelt að ná honum af. 
Burstinn er úr plasti og mjög auðvelt að stjórna honum. 
FALSIES feather look
Maybelline
Þessi maskari þykkir svo mikið og lengir. Ég held að þetta sé fjórði sem ég kaupi. Þessi á það til að "brotna" af ( fyrir þá sem fatta ekki "brotnar" þá er ég að tala um þegar þú færð svona lítil maskara kurl fyrir neðan augun) Hann næst mjög vel af.
Afsaka neglurnar.





No comments:

Post a Comment