Þegar það kemur að því að fjarlægja óæskileghár þá kemur alltaf sama spurningin "hvað á ég að velja hvað er best??" eða allavega hjá mér. Það er svo mikið í boði og við viljum auðvitað velja það sem helst fjarlægir þau að eilífu!! en ekki er það komið upp enn nema lazer.. og nei við erum of ungar og það kostar mjög mikið allavega ekki hef ég efni á því. Ég er bara að skrifa það sem ég hef lært ég er enginn pró svo don't you be mean
Rakvélar/sköfur.
Flestar konur nota það. Auðvelt, þæginlegt og fjarlægir hárin. Mjög auðvelt er að nálgast rakvélar þú getur fengið þær í Bónus, Krónunni og eiginlega öllum matvöruverslunum og auðvitað á fleirri stöðum. Góð rakvél og góð rakfroða ég hef líka heyrt að þú getur líka notað hárnæringu í staðin fyrir rakfroðuna ef þú átt hana ekki til og ert í neyð, þú ert með allt ódýrt og einu sinni enn auðvelt! En svo er það vandinn.. Í rauninni ertu bara að skafa hárin af fótunum, undir hönunum og annarstaðar. Því koma broddar og hárin vaxa fljótt. Og það byrjar allt aftur þú þarft að fara raka þig og þetta mun gerast 1-3 dögum eftir. fyrsta sinn þegar þú rakar mun hárin ekki koma aftur fyrr en ca. 2-4 dögum eftir (auðvitað fer eftir manneskjunni). Svo þegar þú ferð að byrja raka þig reglulega þá þarftu eiginlega að raka þig hvern dag til annanhvern dag. Hárin verða dekkri og þykkri og geta komið margfalt meira tilbaka.
Háreyðingarkrem/froða
Froðan er ekki eins góð og kremið frá minni reynslu. Oh mér finnst svo mikið vesen að nota þetta!! setja kremið á vera öll útí þessu ekkert einhvað góð lykt, bíða í 5-10 mín og svo fara að skola. En eftir allt er þetta eiginlega allt þess virði. Húðin verður mjúk enginn hár. Það sem þetta gerir er að hárin "detta af" jáhá og hvernig þá?? þú ert bara með kremið á og það gerir sitt töfraverk. Háreyðingarkrem taka ekki rótina og vaxa þau svona alveg frá 2-5 dögum eftir á. Og LESTU leiðbeiningar!! Því ef þú hefur of lengi þá geturu brunnið.
hárin koma ekki mikið dekkri eða þykkri tilbaka.
Vax
Þetta vax hér á myndinni gerir svo lítið sem ekkert svo mæli ekki með því en ég veit að það er verið að selja eitthvað sykur vax í The Body Shop. Vax rífur upp rótina. Persónulega finnst mér það svo vont. Ef þú hefur ekki lært að vaxa myndi ég ekkert vera að gera það sjálf einhvð heima. Þú þarf ekkert að læra einhvað svaka bara grunnatriði eins og. Vaxaðu í sömu átt og hárin vaxa, vertu með hreinar hendur og snyrtilegt í kringum þig við viljum ekki fá bakteríur í opna hárrótina og fá inngróin hár. Þú mátt helst ekki fara í bað, sund og bara mikið í vatn sama dag því húðin þarf aðeinns að jafna sig.
Hárin koma eru allt upp að 3 vikur að koma eða lengur. Þau verða ekki dekkri eða þykkri koma bara eins tilbaka eða minni. Ef þú vaxar þig reglulega minnka hárin smátt saman og á endanum hætta þau að koma því þú ert búin að eyðileggja rótina.



